
Heil og sæl. Kristinn Kærnested fótboltagúrú er í spjalli í dag um Bestu deildina, enska boltann og Meistaradeildina. Einar Jónsson handboltagúrú er svo á línunni um úrslitakeppnina í handbolta karla og kvenna ásamt því að við förum yfir gang mála í meistaradeildinni og fleira. Að lokum heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú og við förum yfir málin í úrslitakeppni karla og kvenna þar sem spennan er mikil. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.