Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu fundahöld evrópskra leiðtoga í Kaupmannahöfn um fjölþáttaógnina frá Rússum. Leiðtogar Evrópusambandsins þinguðu í gær og í dag bætast fleiri evrópskir leiðtogar í hópinn, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands. Þá var einnig rætt um úrslit kosninga í Moldóvu þar sem PAS-flokkurinn (Aðgerðir og samstaða), fékk meirihluta þingsæta. PAS vill náið samstarf við Vesturlönd og inngöngu í Evrópusambandið.
Отзывы